Uppskrift:
1 laukur
2 hvítlauksgeirar
4 cm engiferrót
1/2 - 1 rautt chilli
1 líter vatn
grænmetiskraftur
600 gr gulrætur
1 sæt kartafla
Salt og pipar
1. Látið góða msk af olíu í pott og steikið lauk, engifer og chilli, hvítlauknum er svo bætt við.
2. hellið vatninu útí ásamt grænmetistening og
leyfið suðunni að koma upp.
3. Bætið gulrótum og sætri kartöflu út í og sjóðið þar til grænmetið er orðið mjúkt.
4. Þá á að mauka súpuna saman, ég nota töfrasprota en það er líka hægt að nota matvinnsluvél.
5. í lokin má bæta við vatni þar til súpan er orðin eins og þið viljið hafa hana og salt&pipar eftir smekk.
Gott er að gera súpuna fram með grískri jógurt fyrir þá sem vilja ekki hafa hana of sterka :)
Verði ykkur að góðu
- Ásta