mmm þetta var alveg æði !
Uppskrift - fínt fyrir tvo
1 stórt avókadó, afhýtt og steinhreinsað
1 og 1/2 dl Kókosvatn
6 Döðlur
2 msk Kakóduft
1 og 1/2 msk agavesýróp
hnífsoddur himalayasalt
Allt sett í matvinnsluvél nema kókosvatnið er sett smátt og smátt.
Blanda mjög vel, gott að setja einnig í blenderinn þá verður þetta silkimjúkt!
Sett í litla skál og inní ísskáp í c.a. 30 mín eða meira.
Flott að skreyta með möndluflögum, jarðaberi
eða bara því sem ykkur dettur í hug!
Verði ykkur að góðu !
- Ásta
Girnilegt !!!
ReplyDeleteer þetta einn skammtur ?
ReplyDeleteég setti þetta í tvo bolla :)
DeleteThis comment has been removed by a blog administrator.
ReplyDelete