Hveitikímsvefja uppskrift:
Hún er gerð alveg eins og hveitikíms pizzan..
60 gr hveitikím
4 msk vatn
- hræra þessu saman í skál
- mynda bollu
- klessa bollunni á milli tveggja bökunarpappíra og þrýsta ofan á með t.d. skurðarbretti
- Þrýsta svolítið vel þannig að kakan verði mjög þunn
- baka inn í ofni á 180°C í c.a. 15 mín
og svo er tilvalið að setja hvað sem manni dettur í hug á milli
á myndinni var ég með afganga frá kvöldinu áður, kjúklingabringu, ofnbakaðar sætarkartöflur og rauðlauk ásamt spínati og klettasalati.
Svo rúllaði ég þessu upp eins og á Serrano og tók með í hádegisnesti fyrir skólan
Bara snilld !
Verði ykkur að góðu
- Ásta
mm þetta ætla ég að prófa, ekkert smá girnó
ReplyDeleteÉg ætla svo mikið að gera svona, fannst þetta svo girnilegt þegar þú komst með þetta í skólann! :)
ReplyDeleteÞetta er rosalega girnilegt.
ReplyDeleteEnn veistu er í lagi að gera vefjuna daginn áður og setja svo bara á hana og pakka inn um morgunin.. bara ef maður er í tímaþröng á morgnana?
Ekki spurning! Þessa gerði ég kvöldið áður, skellti öllu á hana og rúllaði upp.. geymdi þannig inn í ísskáp og tók svo með mér í nesti daginn eftir :)
Deleteum að gera að prófa sig áfram !
Ég prufaði þetta er reyndar að borða þetta núna en ég gat ekki rúllað minni upp og þetta var ansi lítil flatkaka . Bætti auka vatni við getur það verið vandinn ?. Borða þetta samt set bara grænmeti ofan á og nota hníf og gaffal :)
ReplyDeletehæhæ, en skrítið.. en já það gæti verið afþví þú bættir við vatni.. 4 msk (mæliskeiðar) eiga að duga þú verður bara að hræra vel saman.. þetta lítur út fyrir að vera of þurrt en lagast eftir því sem þú hrærir meira :)
DeleteMín var alveg mjúk, ekki alveg eins auðvelt að rúlla henni upp eins og venjulegri hveititortilla köku en gekk samt vel :)
Var að prófa þessa uppskrift áðan og hún heppnaðist rosa vel hjá mér. Vefjurnar urðu reyndar ekki alveg svona fallega hringlaga en samt fínar :)
ReplyDeleteÆðislegar uppskriftir hjá þér, hlakka til að prófa fleiri. Hveitikímspizza er næst á dagskrá hjá mér :)
Búin að setja þessa síðu í bookmarks hjá mér :)
Frábært að heyra :)
DeleteTakk fyrir!
Bestu kveðjur,
Ásta
Sæl ég var að skoða síðuna hjá þér snilldarsíða takk ;)
ReplyDeleteen þar sem ég prufaði að gera svona vefju í dag þá varð hún svo hörð og rúllaðist ekki upp. á þetta ekki að vera svona klístur þegar maður er búin að blanda saman hveitikím og vatni?
Kveðja Habbý